Beint í efni

Art in Translation

Art in Translation er alþjóðleg ráðstefna sem haldin verður dagana 24. – 26. maí í Norræna húsinu og Öskju. Þar verður stefnt saman listamönnum og fræðimönnum og skoðaðir ýmsir fletir á ritlist, bæði í fræðilegum erindum og listrænum gjörningum. Um 50 lista- og fræðimenn hvaðanæva úr heiminum hafa boðað komu sína. Robin C. Hemley, sem stýrir ritsmiðju við Iowaháskóla, mun flytja opunarfyrirlestur á ráðstefnunni, en Iowa City er ein af Bókmenntaborgun UNESCO. Aðrir lykilfyrirlesarar verða Abé Mark Nornes, prófessor í asískum kvikmyndafræðum við Michiganháskóla og Calum Colvin myndlistarmaður og prófessor frá Skotlandi. Í tengslum við ráðstefnuna verða settar upp tvær myndlistarsýningar, á ljósmyndum Calums Colvin og á bókverkum myndlistarmanna. Ráðstefnan er skipulögð af Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands í samvinnu við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Norræna húsið, Háskólann í Manitoba, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Hugvísindastofnun HÍ, Þýðingasetur HÍ og Listahátíð í Reykjavík. Ráðstefnan er öllum opin. Þeim sem vilja tryggja sér sæti er bent á að skrá sig en einnig er hægt að mæta á einstaka viðburði. Þess ber þó að geta að skráðir þátttakendur hafa forgang að öllum viðburðum. Skráning fer fram á vefsvæði ráðstefnunnar, Art in Translation, og þar má einnig kynna sér glæsilega dagskrá hennar. Netverk bókverka 24. maí til 17. júní 2012 Í tengslum við ráðstefnuna og verkefnið Sjálfstætt fólk á Listahátíð í Reykjavík verður sett upp sýning á bókverkum í Norræna húsinu. Fyrir um fimmtíu árum varð til hreyfing myndlistamanna sem unnu verk sín í bókarformi, sendu bækurnar sín á milli og komu sér þannig upp samstarfsneti sem fóstraði nýja og róttæka sýn á myndlist, samfélag og menningu. Á Íslandi voru listamenn sem snemma tileinkuðu sér þetta nýja tjáningarform – einkum þeir Dieter Roth og Magnús Pálsson – og lögðu grunninn að sterkri bókverkahefð sem síðari kynslóðir listamanna hafa nýtt sér til að koma hugmyndum sínum á framfæri og rækta tengsl við aðra framsækna listamenn um allan heim. Sýningin kannar þennan sterka þráð í íslenskri samtímalist og varpar ljósi á það hvaða hlutverki bókverkin gegndu í að rjúfa einangrun íslenskra framúrstefnulistamanna og gera þá að virkum þátttakendum í nýlistinni á alþjóðavettvangi. Sýning á völdum verkum listamannsins Calum Colvin 24. maí – 28. maí Einnig verður sett upp sýning í Norræna húsinu á verkum Calum Colvin. Colvin teflir saman málaralist, höggmyndalist og skerpu myndavélarinnar í sínum „tilbúnu ljósmyndum“. Hann safnar saman munum sem eru síðan málaðir og ljósmyndaðir. Með þessum tilbúnu sviðsetningum verða til margbrotnar frásagnir, ríkar af skírskotunum og rúmfræðilegri margræðni. Verkin er sýnd sem stórar ljósmyndir. Colvin býr í Edinborg, sem er ein af Bókmenntaborgum UNESCO. Verk eftir hann eru í eigu margra virtra safna, þ.á m. Museum of Modern Art í New York, The Museum of Fine Art í Houston, The Victoria and Albert Museum í Lundúnum, sem og skosku safnanna The Scottish National Portrait Gallery í Edinborg og Tate Gallery.