Beint í efni

Ari Trausti Guðmundsson

Æviágrip

Ari Trausti Guðmundsson fæddist í Reykjavík þann 3. desember 1948. Hann er íslenskur í föðurætt en móðurættin teygir sig til Þýskalands, Póllands og Austurríkis.

Ari Trausti stundaði nám við Háskóla Íslands og í Osló, með áherslu á jarðeðlisfræði og jarðfræði og vann meðal annars við rannsóknarstörf, blaðamennsku, kennslu, leiðsögn og ferðaþjónustu til ársins 1987. Eftir það hefur hann verið sjálfstætt starfandi og til dæmis sinnt ýmis konar faglegri ráðgjöf, fyrirlestrum, ferðaþjónustu, kynningu á vísindum, ritstörfum og dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp.

Hann hefur haft umsjón með tugum útvarpsþátta- og þáttaraða og enn fleiri heimildarmyndum, sjónvarpsþáttum og -þáttaröðum, meðal annars um vísindi og nýsköpun. Ari Trausti hefur stundað ferðalög, útivist og fjallamennsku í áratugi, bæði hér heima og víða um veröld.  Meðal annars hefur hann leitt íslenska ferðahópa til Mongólíu, Nýja-Sjálands og Ekvador. Hann hefur farið mjög víða um norðurslóðir og til fjölda landa í Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku í leit að fjöllum til að klífa.

Fyrsta skáldverk Ara Trausta, smásagnasafnið Vegalínur, kom út árið 2002 og hlaut það Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Áður höfðu ljóð og smásögur eftir hann birst í tímaritum og safnritum. Síðan hefur hann sent frá sér bæði ljóðasöfn og skáldsögur. Að auki hefur Ari Trausti stundað margvísleg önnur  ritstörf, svo sem stjórnmálaskrif, þýðingar og skrif vegna landkynningar eða umhverfismála. Flestar bækur hans, allt frá 1980, fjalla um jarðfræði, eldfjallafræði, stjörnufræði, umhverfisvernd, ferðaslóðir og fjallamennsku. Hann hefur einnig unnið að hönnun sýninga eða safnahluta og útbúið sýningarefni á Íslandi og erlendis. Þá hefur hann lagt stund á myndlist og haldið nokkrar sýningar á teikningum sínum og vatnslitamyndum.