Abarat
Lesa meira
Abarat
Eitt einkenni verka Barkers eru sterkar kvenpersónur og í Abarat hittum við fyrir unglingsstúlkuna Candy, en hún býr með foreldrum sínum í smábæ í Bandaríkunum. Stúlkan býr yfir auðugu ímyndunarafli og finnst sín hversdagslega tilvera fremur ómerkileg, ekki síst þarsem faðirinn er atvinnulaus og kemur illa saman við móður og dóttur. Þegar hún leitar fanga fyrir skólaverkefni kemst hún á snoðir um dularfullan atburð í gömlu hóteli bæjarins og í kjölfarið lendir hún í óvæntu ævintýri, sem endar á því að hún ferðast yfir í annan veruleika í leit að frekari ævintýrum. Og í þessum veruleika er eyjaklasinn Abarat með öllum sínum undrum. Tíminn hér er afstæður, því eyjarnar eru tímaeyjar, hver eyja á sér sína klukkustund og ber merki staðsetningar sinnar innan sólarhringsins.