Beint í efni

Haraldur Jónsson

Æviágrip

Haraldur Jónsson er fæddur í Helsinki á degi bókarinnar, þann 23.apríl 1961. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980 lá leið hans til Frakklands þar sem hann stundaði nám í frönskum bókmenntum og menningarsögu við Paul Valéry háskólann í Montpellier og síðan myndlist við háskólann í Aix en Provence 1982-1983. Hann nam við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndlista-og handíðaskólann þaðan sem hann útskrifaðist 2007. Haraldur lauk Meisterschüler gráðu frá Listaakademíunni í Düsseldorf í Vestur –Þýskalandi árið 1990 og var styrkþegi Parísarborgar við Institut des Hautes Études en Arts Plastiques í París, Frakklandi 1991-1992.

Fyrsta bók Haraldar, stundum alltaf, kom út hjá bókaforlaginu Bjarti 1995 og verkið Fylgjur árið 1998. Það hlaut Menningarnæturverðlaun Reykjavíkurborgar og var einnig tilnefnt til Menningarverðlauna DV í bókmenntum. Árið 2001 gaf Bjartur út verk hans EKKI, ástarsaga. Haraldur hefur einnig fengist við þýðingar og ber þar að nefna Hugmyndabókina sem kom út hjá Sölku árið 2008. Bókin TSOYL kom út hjá bókaforlaginu Útúrdúr árið 2010, en það forlag sérhæfir sig í bókverkum og var TSOYL fyrsta verkið sem útgafan sendi frá sér. Haraldur hefur einnig skrifað útvarpsleikrit og kvikmyndahandrit og flutti Útvarpsleikhúsið verk hans Mannlaus íbúð árið 1997.

Haraldur starfar sem myndlistarmaður og fléttar tungumálið á margbrotinn hátt inn í myndlistarverk sín, gjörninga, hljóðinnsetningar og rýmisverk. Hann hefur haldið tugi einkasýninga og tekið þátt í ótal samsýningum um víða veröld. Verk hans eru í eigu helstu opinberu safna á Íslandi sem og í einksöfnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Haraldur Jónsson var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur þann 17. júní 2019 til eins árs.

Heimasíða Haraldar er www.this.is/comet