Í leyfisleysi: ástarsaga
Lesa meira
Í leyfisleysi: ástarsaga
Bækur um þráhyggju og ranghugmyndir eru oft erfiðar aflestrar, þ.e.a.s. þegar vel er haldið á penna, mann langar til að henda bókinni út í horn, vill ekki hlusta á þetta, vill allra helst snúa af þeirri augljósu braut hörmunga sem söguþráðurinn er kominn á, í stuttu máli geta þær gert lesandann galinn. Ester Nilsson er aðalsöguhetjan í skáldsögu Lenu Andersson, Í leyfisleysi, hún er heimspekingur, ljóðskáld og greinarhöfundur sem allir vegir virðast færir. Í eins konar formála að verkinu fáum við að vita að hún hafi haft lífið á hreinu síðustu 13 árin og að hún sé sannfærð um að heimspekileg og umfram allt skynsöm hugsun sé lykillinn að tilverunni.. .