Beint í efni

Yrsa Sigurðardóttir

Æviágrip

(Vilborg) Yrsa Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 24. ágúst 1963. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983, lauk B.Sc.-prófi frá Háskóla Íslands í byggingarverkfræði 1988 og M.Sc.-prófi í sömu fræðum frá Concordia University í Montreal í Kanada 1997. Yrsa starfar sem byggingarverkfræðingur við framkvæmdaeftirlit á Kárahnjúkum auk þess sem hún stundar ritstörf.

Yrsa sendi frá sér sína fyrstu barnabók, Þar lágu Danir í því, árið 1998. Árið 2000 hlaut hún Viðurkenningu Barnabókaráðs Íslands, Íslandsdeildar IBBY, fyrir bókina Við viljum jólin í júlí og 2003 hlaut hún Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir söguna Biobörn. Fyrsta skáldsaga Yrsu fyrir fullorðna, glæpasagan Þriðja táknið, kom út hjá bókaútgáfunni Veröld 2005. Ári síðar kom svo út sagan Sér grefur gröf þar sem lögfræðingurinn Þóra heldur áfram að fást við dularfull sakamál og síðan hafa fleiri sögur um Þóru bæst í hópinn. Útgáfuréttur bókanna um Þóru hefur verið seldur til fjölmargra landa og hafa þær komið út í þýðingum víða um heim. Fyrsta spennusaga Yrsu þar sem Þóra er ekki í aðalhlutverki er Ég man þig (2010).

Yrsa hefur tvívegis hlotið Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun fyrir bækurnar Ég man þig (2011) og DNA (2015). Árið 2020 var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabókina fyrir bókina Herra Bóbo, Amelía og ættbrókin og til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur (2020) fyrir sömu bók.

Yrsa býr á Seltjarnarnesi. Hún er gift og á tvö börn.

Forlag: Veröld.