Beint í efni

Einar Már Guðmundsson fær Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar

Sænska akademían veitti Einar Má Guðmundsson Norrænu bókmenntaverðlaunin í ár fyrir framlag sitt til bókmennta. Einar Már tók við verðlaununum í Stokkhólmi 11. apríl Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar hafa verið veitt árlega frá 1986. Þau þykja einhver mesti heiður sem norrænum rithöfundi getur hlotnast og eru gjarnan nefnd norrænu nóbelsverðlaunin eða „litli Nóbelinn“. Einar Már Guðmundsson er þriðji Íslendingurinn sem hlýtur verðlaunin, Thor Vilhjálmsson fékk þau árið 1992 og Guðbergur Bergsson árið 2004. Höfundar sem hafa fengið Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar síðustu ár eru: 2011: Ernst Håkon Jahr 2010: Per Olov Enquist 2009: Kjell Askildsen 2008: Sven-Eric Liedman Einar Már er fjölhæfur höfundur sem hefur sent frá sér skáldsögur, smásögur og ljóð en einnig hugleiðingar um samfélagsmál og menningu. Hann hefur hlotið ýmis konar verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, þar á meðal Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1995, norsku Bjørnsonverðlaunin og Karen Blixen heiðursverðlaunin. Hér má sjá fréttatilkynningu frá Sænsku akademíunni.   Hér má sjá fréttatilkynningu frá Sænsku akademíunni.