Beint í efni

Fjöruverðlaunin afhent

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, miðvikudaginn 15. janúar 2020. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti verðlaunin en borgarstjóri er jafnframt verndari verðlaunanna í nafni Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO. 

Fjöruverðlaunin eru veitt í þremur flokkum, flokki fagurbókmennta, barnabókmennta og flokki fræðirita og bóka almenns efnis. 

Verðlaunahafar

Í flokki fagurbókmennta:

Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur. Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa.
 

Í flokki barna- og unglingabókmennta:

Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Útgefandi: Bókabeitan.
 

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:

Jakobína: Saga skálds og konu eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur. Útgefandi: Mál og menning.

Þetta í fjórtánda sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í sjötta sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna. Verðlaunahafar fá verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu ásamt blómvendi en ekki er um peningaverðlaun að ræða.

Rökstuðningur dómnefnda
 

Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur

Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur er ljómandi vel skrifuð og margþætt skáldsaga. Þar fléttast saman sögur ólíkra persóna; eldri manns sem elst upp við Breiðafjörð, húsmóður í Kópavogi og ungs innflytjanda frá Kína. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera jaðarsett og einangruð, hvert á sinn hátt. Heimurinn sem Bergþóra dregur upp er grimmur en persónur hennar eru heilsteyptar og þótt lýsingar séu oft gróteskar eru þær skapaðar af stakri næmni fyrir breyskleika mannfólksins. Bergþóra dregur fram áhrifaríkar myndir sem sitja lengi í lesandanum og vald hennar á tungumálinu er slíkt að unun er að lesa Svínshöfuð.“

Jakobína: Saga skálds og konu eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur

Jakobína, saga skálds og konu segir frá lífi og starfi Jakobínu Sigurðardóttur rithöfundar. Jakobína er án efa með merkilegri skáldum síns tíma á Íslandi, en ferlið var oft flókið. Bókin segir frá löngun í menntun, togstreitu gagnvart hjónabandi og síðar húsmóðurhlutverkinu, og skáldastarfinu sem hún brann fyrir alla ævi. Bókin er skrifuð af dóttur Jakobínu, Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, sem tvinnar einstaklega vel saman sögu þessarar áhugaverðu konu, bréfaskrif milli Jakobínu og hennar nánustu, og ljóð eftir hana og aðra. Útkoman er forvitnileg saga sem gefur ómetanlega innsýn inn í líf og hugarheim þessa áhrifamikla skálds.“

Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur

„Bergrún Íris Sævarsdóttir er fjölkunnug mjög enda bæði afbragðs listakona og rithöfundur. Bók hennar, Kennarinn sem hvarf er fimlega byggð spennusaga sem heldur lesendum á aldrinum 9-12 ára föngnum til enda. Spennusagnaformið keyrir söguna áfram en sagan er allt í senn, hröð og skemmtileg og byggð samkvæmt lögmálum hefðbundinnar frásagnar. Söguna segir 12 ára gömul stúlka sem ásamt bekkjarfélögum sínum leita horfins kennara og leysa um leið flóknar þrautir. Persónurnar virðast við fyrstu sýn fremur einfaldar og staðlaðar en þegar á reynir eru þær ekki byggðar upp af staðalímyndum heldur verða þær lifandi og margræðar þegar á frásögnina líður rétt eins og frásögnin sjálf. Bygging bókarinnar ásamt persónusköpun fleytir þessari heildstæðu sögu hátt og færir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur Fjöruverðlaunin 2020.“

Þess má svo geta að Bergrún Íris varð fyrst til að hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir handritið að bókinni Kennarinn sem hvarf en Reykjavíkurborg stofnaði til þeirra árið 2018 og voru þau veitt í fyrsta sinn í fyrra. 

Tilnefndar bækur

Auk verðlaunabókanna voru eftirtaldar bækur tilnefndar til Fjöruverðlaunna að þessu sinni.

Fagurbókmenntir

Okfruman eftir Brynju Hjálmsdóttur. Útgefandi: Una útgáfuhús.

Svanafólkið eftir Kristínu Ómarsdóttur. Útgefandi: Partus.

Barna- og unglingabækur

Kjarval: málarinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggvadóttur. Útgefandi: Iðunn.

Villueyjar eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur. Útgefandi: Bókabeitan.

Fræðibækur og bækur almenns efnis

Listin að vefa eftir Ragnheiði Björk Þórsdóttur. Útgefandi: Vaka-Helgafell.

Öræfahjörðin: Saga hreindýra á Íslandi eftir Unni Birnu Karlsdóttur. Útgefandi: Sögufélag.