Reykjavik, UNESCO City of Literature, is the cultural capital of the North Atlantic, filled with literature events, art, poetry, book festivals and Icelandic literature resources ranging from the contemporary to the sagas of the Icelanders and other medieval literature.

Through this website, book and art lovers will not only discover Reykjavik’s diverse cultural happenings but also explore Iceland’s rich literary heritage.


Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO heldur saman upplýsingum um orðlist, bókmenntir og viðburði á sviði bókmenningar í Reykjavík. Borgin hlaut þennan varanlega titil í ágúst 2011 og gekk þar með í Samtök Skapandi borga UNESCO (Creative Cities Network), en það eru samtök borga víðs vegar um heim sem standa framarlega á sviði lista og menningar.

Á þessum vef geta unnendur bókmennta af öllum toga kynnt sér bókmenntalífið í höfuðborginni og þau verkefni sem Bókmenntaborgin stendur að.

Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO

Vesturgata 1 101 Reykjavík 590 1520 bokmenntaborgin@reykjavik.is

Reykjavík UNESCO City of Literature

Vesturgata 1 Reykjavík Tel +354 590 1520 bokmenntaborgin@reykjavik.is

Bókamessa í Bókmenntaborg – Dagskrá

Sunnudagur 13. nóvember

Tjarnarsalur Ráðhússins:

11:00 – 18:00
Íslenskir bókaútgefendur kynna glóðheitar bækur af öllum toga sem koma út nú fyrir jólin.

Kaffihúsið Öndin, Ráðhúsi:

15:00 – 15:30
Stelpur A – Ö
Kristín Tómasdóttir spjallar um bók sína Stelpur A-Ö. Upplýsingabrunnur fyrir forvitnar stelpur og svarar spurningum frá forvitnum áheyrendum á öllum aldri.

Iðnó, 1. hæð:

13:00 – 14:00
Græni sófinn – Þýðingar
Jórunn Sigurðardóttir spjallar um þýðingar við Þuríði Maggý Magnúsdóttur, félagsráðgjafa og ástríðufullan lesenda skáldverka og þýðendurna Pál Valsson og Sigrún Ástríði Eiríksdóttur. Meðal bóka sem ber á góma eru Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir Jonas Jonasson sem Páll þýddi, Eyjan undir sjónum eftir Isabel Allende í þýðingu Sigrúnar Ástríðar og Andarsláttur eftir Hertu Müller, sem Bjarni Jónsson þýddi.

14:00 – 15:00
Græni sófinn – Druslubókadömur og kvenrithöfundar
Druslubókadömurnar Kristín Svava Tómasdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Hildur Knútsdóttir spjalla við rithöfundana  Auði Övu Ólafsdóttur, Bryndísi Björgvinsdóttur og Sigríði Víðis Jónsdóttur um nýútkomin verk þeirra.  Skáldsaga Auðar Övu, Afleggjarinn, hefur slegið í gegn erlendis á þessu ári og Þjóðleikhúsið sýnir nú nýjasta verk hennar, leikritið Svartur hundur prestsins. Bryndís Björgvinsdóttir hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í ár fyrir bókina Flugan sem stöðvaði stríðið, sem er hennar önnur bók. Bók Sigríðar Víðis Jónsdóttur, Ríkisfang ekkert, um sögu palenstínskra flóttakvenna á Akranesi hefur vakið mikla athygli frá því að hún kom út fyrr á árinu.

15:00 – 16:00
Græni sófinn – Matur er mannsins megin
Sigurlaug M. Jónasdóttir fær til sín matgæðinga og höfunda bókanna Jólamatur Nönnu, Stóra bókin um villibráð, Góður matur, gott líf og Hollt nesti að heiman.

16:00 – 16:50
Listasagan á 50 mínútum
Jón Proppé listheimspekingur stiklar á stóru í íslenskri listasögu í tilefni af útkomu bókarinnar Íslensk listasaga, sem spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs þeirrar 21. Ritstjóri verksins er Ólafur Kvaran en alls koma fjórtán höfundar að því og er Jón Proppé einn þeirra.

17:00 – 18:30
Ljóðadagskrá
Ljóðskáld lesa úr nýútkomnum ljóðabókum sínum. Skáldin sem stíga á svið í Iðnó eru Kristín Svava Tómasdóttir,  Sindri Freysson, Ingunn Snædal, Sigmundur Ernir Rúnarsson,  Steinunn G. Helgadóttir, Eyþór Árnason, Unnur Guttormsdóttir og Anton Helgi Jónsson.

Iðnó, 2. hæð:

13:00 – 13:30
Barnanudd
Þórgunna Þórarinsdóttir kynnir bók sína Barnanuddbókin og sýnir hvernig hvernig á að nudda börn frá fæðingu til fimmtán ára aldurs.

13:30 – 14:00
Barnajóga
Eva Rún Þorgeirsdóttir og Stella Sigurgeirsdóttir kynna bók sína Auður og gamla tréð, jógabók fyrir börn og Eva Rún leiðir jógaæfingar með börnunum. Allir krakkar velkomnir!

14:00 – 15:00
Föndursmiðja – Búum til sögupersónur!
Myndlistakonan og rithöfundurinn Kristín Arngrímsdóttir aðstoðar börn og fylgdarfólk þeirra við að föndra þekktar sögupersónur úr barnabókum. Allt efni  frítt á staðnum og að sjálfsögðu geta allir tekið sína sögupersónu með sér heim eftir föndurstundina.

Sögubíllinn Æringi:

14:00 – 16:00
Sögustundir með höfundum
Sögubíll Borgarbókasafns, Æringi, verður við Iðnó og þar lesa höfundar úr nýútkomnum bókum fyrir börn á aldrinum 4ra til 8 ára. Meðal annars verður lesið úr eftirtöldum bókum: Íslensku húsdýri n og Trölli eftir Bergljótu Arnalds, Hávamál eftir Þórarinn Eldjárn, Keli minn sem hvarf eftir Ingibjörgu Kr. Ferdinandsdóttur, Agnar Smári – tilþrif í tónlistarskólanum eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, Rikka og töfrahringurinn í Japan eftir Hendrikku Waage, Komdu, höldum veislu! eftir Björk Bjarkadóttur og Hver er klárastur? eftir Ramos og Einar Áskell og allsnægtapokinn eftir Gunnillu Bergström.

Í tilefni Bókamessunnar ætlar Glætan bókakaffi á Laugavegi að bjóða upp á messukaffi og pönnukökur á 650 krónur alla helgina.

„ég meina / hver heldurðu að trúi / þessum  / leikhúsbleiku skuggum / þessum álfabláa himni?”

Sigurbjörg Þrastardóttir: Akrafjall

visitreykjavik

YouTube