Greinar og viðtöl

Laugardaginn 21. janúar 2012 var haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri. Þar var fjallað um niðurstöður rannsókna sem benda til þess að ört stækkandi hópur ungs fólks á Íslandi geti ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans. Hópur rithöfunda stóð að ráðstefnunni og stendur sami hópur fyrir síðum á samskiptavefnum Facebook undir heitinu Lesum bækur og Baráttan fyrir lestrinum.

Hér höfum við safnað saman greinum og viðtölum sem hafa birst af þessu tilefni og munum halda áfram að bæta við efni um þetta málefni eftir því sem það kemur fram.

Greinar og viðtöl:

Pétur Gunnarsson, rithöfundur, skrifaði grein í Fréttablaðið sem vekur athygli á þessari þróun, sem heitir „Læsi er lífsgæði.“

Kristín Helga Gunnarsdóttir og Pétur Gunnarsson, rithöfundar, mættu í morgunútvarp Rásar 2, þar sem þau fjölluðu um hnignandi lestrarkunnáttu íslenskra barna.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundar, fjölluðu um alvöru ólæsis í þættinum Samfélagið í nærmynd á Rás 1.
Andri Snær Magnason og Margrét Örnólfsdóttir voru í þættinum Í bítið á Bylgjunni í vikunni.

Í Víðsjá var spjallað við Pétur Gunnarsson rithöfund.

RÚV birti stutt viðtal við einn fyrirlesara ráðstefnunnar, Guðmund Engilbertsson, á vefsíðu sinni.

Á vef Háskólans á Akureyri má sjá athyglisverðar niðurstöður lestrarrannsókna sem Miðstöð skólaþróunnar tekur þátt í.

Andri Snær Magnason ræddi um mikilvægi góðra námsbóka á vefmiðlinum Smugunni. Heilsíðugreinin “Strákarnir okkar”, eftir Andra Snæ birtist síðan í Fréttablaðinu 25. janúar.

Grein Jóns Kalmans: “Um lestur, leti okkar og hugmyndasnauðar skólabækur” birtist í Fréttatímanum 26. janúar.

Lestraráhugi nemenda í norrænu ríkjunum hefur minnkað, sérstaklega hjá drengjum. Meiri áhersla ætti að vera á bókmenntir sem höfða bæði til drengja og stúlkna í kennslunni, segja sérfræðingar sem hafa rannsakað norrænar niðurstöður PISA-skýrslunnar. Sjá nánar á vefsíðu Norrænu ráðherranefndarinnar.