Lestrarhátíð

Eitt af stærri verkefnum Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO er að standa fyrir árlegri lestrarhátíð í Reykjavík í samvinnu við stofnanir, félagasamtök og aðra sem starfa á bókmenntasviðinu. Slík hátíð var haldin í fyrsta sinn í október 2012. Lestrarhátíð er fyrir fólk á öllum aldri en í þetta fyrsta sinn var athyglinni sérstaklega beint að unglingum og ungu fólki.

Hátíðin er hugsuð sem grasrótarhátíð þar sem allir þeir sem vilja bjóða upp á viðburði og dagskrá sem tengist þemanu hverju sinni geta tekið þátt. Hátíðin stendur allan mánuðinn.

 

Skáldsagan Vögguvísa eftir Elías Mar var í brennidepli  á fyrstu hátíðinni en þessi skemmtilega saga frá Reykjavík eftirstríðsáranna er ein af fyrstu Reykjavíkursögunum og sú fyrsta sem lýsir lífi utangarðsunglinga á Íslandi. Þar er tónlist, tíska, kvikmyndir og tungumál æskufólks hinnar ungu borgar alltumlykjandi. Í nýrri útgáfu sem bókaforlagið Lesstofan gaf út fylgir merkilegt slangurorðasafn sem Elías safnaði þegar hann skrifaði bókina. Bókin var gefin út í pappírsformi, sem rafbók og hljóðbók.