Sleipnir

Bókmenntaborgin hefur gert áttfætta goðsagnahestinn Sleipni að sérlegum félaga sínum.  Sleipnir er þeim töfrum gæddur að geta flogið á milli heima og er því táknmynd ferðalagsins og hugarflugsins sem bóklestur býður okkur upp á.  Sleipnir er því enginn venjulegur hestur, hann er í raun tákn skáldskaparins sjálfs, hinn norræni skáldfákur.

Í nafni Sleipnis mun Bókmenntaborgin taka þátt í verkefnum sem snúa að lestrarhvatningu og skapandi starfi barna og ungmenna. Reykjavíkurborg leggur þegar áherslu á slíkt starf með skapandi sumarhópum ungs fólks, barna- og unglingastarfi Borgarbókasafns, skapandi starfi í leikskólum og grunnskólum og nýrri Barnamenningarhátíð, en áhugi er fyrir því að efla samstarf ólíkra aðila á þessu sviði.

Í goðsögunni er Sleipnir afkvæmi Loka að móðerni og jötnahestsins Svaðilfara. Sleipnir þýðir sá sem rennur hratt áfram. Hann er hestur Óðins og sagður allra hesta bestur og hefur hann rúnir ristar á tennur sér.

Sleipnir mun standa að ýmsum lestarhvetjandi viðburðum á vegum Bókmenntaborgarinnar fyrir yngri kynslóðirnar. Hans fyrsta verkefni var að bjóða börnum í ratleik í kringum Reykjavíkurtjörn á Barnamenningarhátíðinni 2012 þar sem börn og foreldar gátu leikið sér að því að leysa léttar þrautir tengdar textum úr barnabókum. Sleipnir bauð einnig börnum til sín í Sleipnisstofu í Ævintýrahöllinni sem var í Iðnó á meðan hátíðin stóð yfir.

Sumarið 2012 hvatti Sleipnir krakka sérstaklega til að taka þátt í sumarlestri Borgarbókasafns Reykjavíkur.

Sumarlestur með Sleipni

Sleipnir er teiknaður af Gunnari Karlssyni myndlistarmanni.

Skoða myndskeið með Sleipni:

Sleipnir á flugi

Lestur er hugarflug