Morðið í Gróttu
Lesa meiraMorðin í Skálholti
Lesa meiraMorðið í Rockville
Lesa meiraMorðið í Drekkingarhyl
Lesa meira
Morðið í Gróttu
Það ríkir engin kyrrð í heimi Stellu frekar en fyrri daginn, líf ofurlögfræðingsins er stöðugt stuð ef marka má þessa níundu bók höfundar, Morðið í Gróttu. Eins og allir vita er Stella Blómkvist sjálf(ur?) mesti leyndardómurinn, því enn hefur ekki tekist að afhjúpa hið raunverulega nafn höfundar. Samt eru liðin 20 ár síðan fyrsta bókin kom út, en árið 1997 leysti Stella morð í Stjórnarráðinu. Sama ár kom út fyrsta bók Arnaldar Indriðasonar, Synir duftsins, og árið er því oft talið marka upphaf íslensku (nútíma) glæpasögunnar. Sú hefur síðan náð siglingu í félagi við gríðarlegar vinsældir norrænna glæpasagna. Nú hefur Stella náð í skottið á þeirri bylgju, en á þessu ári var frumsýnd sjónvarpsþáttaröð byggð á sögunum.
Morðin í Skálholti
. . Stella Blómkvist hefur í nógu að snúast í nýjustu bók sinni, Morðin í Skálholti. Fyrir utan að lenda sjálf í slysi (þar sem hún óvart finnur mannshandlegg í jökli) er hún að finna týnda konu og leysa tvöfalt morð í Skálholti, nánar tiltekið hinni umdeildu Þorláksbúð. Og svo er hún að verja vin sinn fréttamanninn gegn kerfisköllum. Og sitthvað fleira. Stella er og verður einn af leyndardómum íslenskar bókmenntasögu en hún er merkileg fyrir aðrar sakir.. .
Morðið í Rockville
Morðið í Rockville er 6. bókin um lögfræðinginn Stellu Blómkvist sem rekur ekki mál sín fyrir dómi, frekar en Þóra í sögum Yrsu Sigurðardóttur, heldur starfar sjálfstætt að rannsókn mála sem virðast vefjast fyrir lögreglunni. Áður en lengra er haldið verð ég að játa að þetta er fyrsta bókin sem ég les um Stellu og því get ég ekki dæmt um það hvernig hún er í samanburði við hinar í seríunni og ég veit því heldur ekki hvort að persóna Stellu hefur alltaf verið eins eða hvort hún hefur mótast og breyst í gegnum sögurnar.
Morðið í Drekkingarhyl
Hver er hún? Hver er höfundurinn, Stella Blómkvist? Kona, eða karl sem þykist vera kona? Skáldsagnapersónan er ljós en höfundurinn ekki. Það er freistandi að taka þátt í ágiskunarleiknum; hver er höfundurinn? Sá sem þetta ritar giskar á að hann sé karlmaður á sextugsaldri, af 68-kynslóðinni eða þar um bil – Þegar fram kemur að faðir skáldsagnapersónunnar, Stellu, ber nafnið Karl rennir mann grun í að höfundurinn hafi í æsku lesið bækurnar um leynilögregludrenginn Karl Blómkvist eftir Astrid Lindgren. Það passar við þá kynslóð sem fædd er á árunum 1950-1955. Nokkur nöfn koma í hugann en engin verða nefnd að sinni.