Beint í efni

Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Tilkynnt var þann 3. mars hvaða fimmtán bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2018, en verðlaunin verða afhent síðasta vetrardag í Höfða. Tilnefningar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, þar sem nú stendur yfir sýningin; Þetta vilja börnin sjá, myndskreytingar úr íslenskum barna- og unglingabókum sem komu út á árinu 2017.

Fimmtán bækur tilnefndar

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eru veitt í þremur flokkum og voru fimm bækur tilnefndar í hverjum þeirra; fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina, best myndskreyttu bókina og bestu þýðingu á barna- og unglingabók sem gefin var út á árinu 2017.
 

Tilnefndar bækur í flokki bestu myndskreytinga;

  • Fjölskyldan mín
    Lára Garðarsdóttir, útgefandi Salka

  • Fuglar
    Rán Flygenring, útgefandi Angústúra
  • Kvæðið um Krummaling
    Högni Sigurþórsson, útgefandi Dimma
  • Jólakötturinn tekinn í gegn
    Brian Pilkington, útgefandi Forlagið
  • Pétur og úlfurinn... en hvað varð um úlfinn?
    Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, útgefandi Töfrahurð

Tilnefndar bækur í flokki bestu þýðingar á barna- og unglingabók á árinu 2017

  • Bakarísráðgátan
    Íris Baldursdóttir, útg. Mál og menning

  • Flóttinn hans afa
    Guðni Kolbeinsson, útg. Bókafélagið
  • Kepler 62 Fyrsta bók: Kallið
    Erla E. Völudóttir, útg. Bókabeitan
  • Kvöldsögur fyrir uppreisnargjarnar stelpur
    Magnea J. Matthíasdóttir , útg. Mál og menning
  • Rummungur ræningi
    Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, útg. Dimma

Tilnefndar bækur í flokki frumsaminna barna- og unglingabóka:

  • Er ekki allt í lagi með þig?
    Elísa Jóhannsdóttir, útg. Vaka Helgafell

  • Fuglar
    Hjörleifur Hjartarson, útg. Angústúra

  • (Lang)elstur í bekknum
    Bergrún Íris Sævarsdóttir, útg. Bókabeitan.
  • Vertu ósýnilegur
    Kristín Helga Gunnarsdóttir, útg. Mál og menning
  • Þitt eigið ævintýri
    Ævar Þór Benediktsson, útg. Mál og menning

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eiga sér lengsta sögu barnabókaverðlauna á landinu og er helsta markmið þeirra að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga lesendur og hvetja þá til bóklesturs. Valnefnd er skipuð Brynhildi Björnsdóttur formanni, Jónu Björg Sætran, Gunnari Birni Melsted, Davíð Stefánssyni og Þórdísi Aðalsteinsdóttur.