Miðvikudagur, 13. Júní 2012, 17:00 - 19:00
Norræna húsið, Sturlugötu 5 101
Í tilefni af útgáfu bókarinnar Ég er á lífi, pabbi, bjóða forlagið Draumsýn, Norræna félagið, Norska sendiráðið og bókasafn Norræna hússins til útgáfuhófs í Norræna húsinu miðvikudaginn 13. júní kl. 17 – 19.
Gestir Draumsýnar af þessu tilefni eru feðginin Erik H. Sönstelie og Siri Marie Seim Sönstelie, höfundar bókarinnar. Siri Marie er eitt þeirra ungmenna sem komust lífs af í Útey þann 22. júlí 2011. Bogi Ágústsson fréttamaður mun ræða við þau og einnig munu höfundarnir gróðursetja tvær bjarkir sem upphaf að fyrirhuguðum minningarreit um fórnarlömb fjöldamorðanna.