Íslenskar perlur á Gljúfrasteini

Sunnudagur, 17. Júní 2012, 16:00
Gljúfrasteinn, Glúfrasteinn 270

Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ingunn H. Hauksdóttir munu flytja nokkur af ástsælustu sönglögum þjóðarinnar á Gljúfrasteini sunnudaginn 17. júní klukkan 16.

Á efnisskránni má finna lög eftir tónskáld á borð við Atla Heimi Sveinsson og Sigfús Halldórsson við texta eftir höfunda eins og Matthías Jochumsson og Halldór Laxness.

Aðgangseyrir er 1.000 kr. og allir eru velkomnir.