Sumarlestur

Föstudagur, 1. Júní 2012 - Föstudagur, 31. Ágúst 2012, Allan daginn
Borgarbókasafn Reykjavíkur - Aðalsafn, Tryggvagötu 15 Reykjavík

Börn og unglingar geta tekið þátt í sumarlestri í öllum söfnum Borgarbókasafns sumarið 2012. Það er einfalt að taka þátt, á söfnunum verða miðar í formi sólargeisla sem krakkar geta skrifað nafn sitt á þegar lesinni bók eða bókum er skilað og þannig komast þeir í pott sem dregið verður úr í hverju safni í sumarlok.

Allir krakkar geta tekið þátt óháð aldri og engin takmörk eru á fjölda sólargeisla sem hver lesandi getur bætt við á sólina.

Söfn Borgarbókasafns eru:

Aðalsafn, Tryggvagötu 15
Ársafn, Hraunbæ 119
Foldasafn í Grafarvogskirkju við Fjörgyn
Gerðubergssafn í Gerðubergi
Kringlusafn í tengibyggingu milli Kringlunnar og Borgarleikhússins
Sólheimasafn, Sólheimum 27

Sumarlestur Borgarbókasafns