Bókamessa í Bókmenntaborg

Bókamessa var með heldur óhefðbundnu sniði árið 2020 þar sem engin messa var haldin í Hörpu- en Bókmenntaborgin stóð fyrir bókaspjalli og upplestrum á fésbókarsíðu sinni.
Dagskráin er enn aðgengileg í vefstiklum og einnig eru upplýsingar um vefbókabúðir og útgefendur að finna á
Bókamessu í Bókmenntaborg 2020
Bókamessu í Bókmenntaborg 2020
Fyrsta Bókamessa í Bókmenntaborg var haldin árið 2011 í Ráðhúsinu og Iðnó. Síðan þá hefur Bókamessa vaxið ár frá ári og er nú einn af stóru viðburðunum í bókmenntalífi borgarinnar. Bókamessa flutti í Hörpu árið 2016 og leggur þar undir sig Flóa og salina Rímu A og B.
Á Bókamessu koma saman bókaútgefendur, höfundar og lesendur og eiga saman helgi þar sem orðlistin er í öndvegi. Fjölbreytt og skemmtileg bókmenntadagskrá er í tengslum við Bókamessu og lesendur geta nælt sér í glóðvolgar bækur á góðu verði beint frá útgefenda.
Bókamessa árið 2019 er dagana 23. -24. nóvember.
Bókamessa árið 2020 er dagana 21. -22. nóvember - aflýst.
Bókamessa árið 2021 er dagana 20. -21. nóvember.