Beint í efni

Blóðberg

Blóðberg
Höfundur
Þóra Karítas Árnadóttir
Útgefandi
JPV útgáfa
Staður
Reykjavík
Ár
2020
Flokkur
Skáldsögur

Um bókina

Árið 1608 sver ung stúlka í Skagafirði, Þórdís Halldórsdóttir, eið um að hún sé hrein mey eftir að upp kemur kvittur um ástarsamband hennar við mág sinn en slíkt var dauðasök á tímum stóradóms. Fimm mánuðum síðar fæðir hún barn. Þórdís má lifa með ásökunum um blóðskömm og í trássi við landslög er henni gert að sæta pyntingum segi hún ekki til barnsföður síns. Á hverju ári ríður hún suður heiðar til að mæta fyrir Alþingi á Þingvöllum en heill áratugur líður þar til dómur er kveðinn upp.

Þóra Karítas Árnadóttir hefur starfað við skrif, leikhús og sjónvarpsþáttagerð. Árið 2015 sendi hún frá sér sannsöguna Mörk – saga mömmu sem hlaut góðar viðtökur lesenda. Blóðberg er fyrsta skáldsaga hennar.

 

Fleira eftir sama höfund