Beint í efni

Brjálsemissteinninn brottnuminn

Brjálsemissteinninn brottnuminn
Höfundur
Alejandra Pizarnik
Útgefandi
Una útgáfuhús
Staður
Reykjavík
Ár
2020
Flokkur
Ljóð

Um bókina

 

Alejandra Pizarnik (1936–1972) er hálfgerð goðsögn í bókmenntum Rómönsku Ameríku. Hún var af austur-evrópskum gyðingaættum, samkynhneigð og féll ung fyrir eigin hendi. Lengi vel var hún nær óþekkt meðal almennings en í miklum metum í bókmenntakreðsum og hjá helstu rithöfundum álfunnar. Á síðustu árum hafa æ fleiri lesendur flækst í þéttofinn orðavef skáldsins sem einkennist af lokkandi dulúð, töfrandi málfari og innilegum samræðum við melankólíuna og myrkrið.

Brjálsemissteinninn brottnuminn er fyrsta úrval af ljóðum, prósum og smáprósum eftir Alejöndru Pizarnik á íslensku.

Hermann Stefánsson þýðir og ritar eftirmála um ævi og verk skáldsins.

 

Fleira eftir sama höfund