Beint í efni

Frágangur

Frágangur
Höfundur
Megas
Útgefandi
Sena
Staður
Reykjavík
Ár
2007
Flokkur
Hljómdiskar / Hljómplötur

Ásamt Senuþjófunum.

Lagalisti:

01. Konung Gustav III:s mord
02. Ábending
03. Og mey girnist mær
04. Gott er að elska
05. Tilmæli
06. (Minnst tíu milljón) Flóabitanótt
07. Huggutugga
08. M-nótt
09. Heill
10. Freyjufár
11. Uppskeruhátíð
12. Niður með náttúruna

Textabrot úr Frágangi:

Huggutugga

Það þarf aðeins eina pillu
og öll þín þraut er á braut
aðeins eina pillu
og öll þín þraut er endanlega á braut

aldrei framar þarftu með kuldahrolli að kvíða
að ekki neinu flottu tæki fáirðu að ríða
öll þín þraut er á braut
og ekki meir muntu örvænta þó
útúrýkt vírað sértu halló
öll þín þraut er á braut

þú þarft ekki paxal prósakk eða dísu
þó öll þín plön stefni í kaótíska krísu
og nú gengurðu að því vísu
að það sem misstirðu inní fýsu
á banvænt boring meganörd sem þú skrúaðir sem skvísu
öll þín þraut er á braut

haglarinn fær að hanga á veggnum kyr
hallgrímskirku pirra þig ekki par turnrimlarnir
rakhnífar þurfa ekki að minna á rauðskjöldótta kú
og þú híar á höfnina - hú níds jú
reykjavík skerið júróp abú
jörð sólkerfi vetrarbraut abú
allt þitt hamrahaf er pillað af

allt mitt bögg
hvarf einsog til dæmis dögg
fyrir sólu - bara að djóka
iiiiiiii kóla en ekki kóka
en úr heimi flautaður
hve illa sem um þig er tautað - kjur
í jörðinni ertu skautaður
og bautaður og brautaður
en altént aldrei framar út muntu grautaður
öll þín þraut er á braut

frír ertu frá dælunum
og doktormengelsku gælunum
og heilaþvottaplottbælunum
og stuðstrimlamælunum
þú þýtur með hælin á hælunum
sem hremma þig vilja með smælunum
en múnandi þú slummar í þau ojbjökkustu ælunum
og ekki þarftu meir að stuðast af stælunum
hjá stjórunum sem eiga þig allan á fælunum
og matríkúla meikar ekki að meyra þig með skælunum
öll þín þraut er á braut

aðeins barasta ein einasta pilla
og er það nokkuð nema dramb og djöfulmögnuð dilla
að draga ekki upp miða
og hjá dílar leita griða
og úr vasa í hönd og uppí sig með ögna f vatni kyngja
og innan skammst mun ein rödd með englunum syngja
öll mín þraut er á braut

Fleira eftir sama höfund

Megas – textar 1966-2011

Lesa meira

Drög að sjálfsmorði

Lesa meira

Haugbrot: glefsur úr neó-reykvískum raunveruleika

Lesa meira

Á bleikum náttkjólum

Lesa meira

Bláir draumar

Lesa meira

Drög að upprisu

Lesa meira

Englaryk í tímaglasi

Lesa meira

Far ... þinn veg

Lesa meira

Fláa veröld

Lesa meira