Beint í efni

Heimskaut

Heimskaut
Höfundur
Gerður Kristný
Útgefandi
Mál og menning
Staður
Reykjavík
Ár
2019
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Heimskaut er safn nýrra ljóða þar sem víða er leitað fanga – í heimskautaferðum, blíðri og óblíðri náttúrunni og sögulegum atburðum. Heimskaut er níunda ljóðabók Gerðar Kristnýjar. Fyrir síðustu bók sína, Sálumessu (2018), var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í þriðja sinn en þau verðlaun hlaut hún fyrir Blóðhófni (2010), sem jafnframt var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Úr Heimskautum


Stytta

Snjórinn liggur
eins og sjal
á herðum
lotnu konunnar
við Landakotskirkju

Hún verður mín
ekki vör þegar
ég geng hjá

Ég sný mér við
en þá er hún horfin

Það rennur
upp fyrir mér að
það sem ég hélt
að væri sjal
var í raun vængur

 

Fleira eftir sama höfund

Ljóð í Moord liederen

Lesa meira

Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf

Lesa meira

Prinsessan á Bessastöðum

Lesa meira

Ballið á Bessastöðum

Lesa meira

Kirkegården

Lesa meira

Strandir

Lesa meira

Die letzte Nacht des Jahres

Lesa meira
urta

Urta

Urta segir í fáum orðum sögu af harðri lífsbaráttu á hjara veraldar.
Lesa meira