Beint í efni

Leðurjakkaveður

Leðurjakkaveður
Höfundur
Fríða Ísberg
Útgefandi
Mál og menning
Staður
Reykjavík
Ár
2019
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Leðurjakkaveður er önnur ljóðabók Fríðu Ísberg, sem vakið hefur mikla athygli fyrir skrif sín, ljóðabókina Slitförin og smásagnasafnið Kláða. Hér yrkir hún um viðkvæmni, vörn og togstreituna milli sviðsetningar og sannleika á tímum einstaklingsdýrkunar.

 

úr bókinni

Vöxtur

manneskjan vex
ekki eins og tré
heldur tún

mér óx orðaforði
væntumþykja, neglur, hár
efi

sjálfsmeðvitund og örvænting
saman
mynduðu þær spegil

og spegillinn óx eins og
silfraður fiskur um hrygg

eins og múr
utan um heimsveldi
eða gaddavír um bithaga

 

Fleira eftir sama höfund

Kláði

Lesa meira

Slitförin

Lesa meira

Kløe: noveller

Lesa meira

Merking

Lesa meira