Beint í efni

Tilfinningarök

Tilfinningarök
Höfundur
Þórdís Gísladóttir
Útgefandi
Bjartur
Staður
Reykjavík
Ár
2015
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Tilfinningarök er þriðja ljóðabók Þórdísar Gísladóttur sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010 fyrir Leyndarmál annarra og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Velúr árið 2014.

Í þessari bók er ljósi varpað á líf fólks sem lesandinn telur sig ef til vill kannast við. Ef rýnt er í skuggana milli línanna kunna að leynast þar forvitnilegri atburðir en yfirborðið gefur til kynna.

Úr bókinni

XI

Þó að fólk haldi annað þá býr hún ekki ein. Í leiguíbúðinni býr líka draugur sem skríður upp í hjá henni á kvöldin. Hann leggst ekki þétt upp við hana, hann heldur sig við rúmstokkinn hinum megin. Í fyrstu varð hún óttaslegin þegar hún varð vör við hann, en nú er hún óhrædd. Það er jafnvel róandi að hafa hann þarna. Hann er fremur óræður í útliti en hún er ekki frá því að hann líkist Jerry Seinfeld. Hann er klæddur ljósum, vel gyrtum gallabuxum eins og sjónvarpsstjarnan og hár hans er örlítið liðað. Hún veit ekki hvað hún gerir ef hann reynir að snerta hana.

 

Fleira eftir sama höfund

randalín og mundi : dagar í desember

Randalín og Mundi : Dagar í desember

Vinirnir Randalín og Mundi lenda í miklum ævintýrum í jólamánuðinum, . gera góðverk og óvart skemmdarverk.
Lesa meira
alger steliþjófur

Alger steliþjófur!

- Hann tók litla dótið, sagði Irma Lóa allt í einu og var greinilega frekar æst. Hann er algjör frekja þessi karl.
Lesa meira

Randalín, Mundi og leyndarmálið

Lesa meira

Mislæg gatnamót

Lesa meira

Doddi – Ekkert rugl!

Lesa meira

Doddi – Bók sannleikans!

Lesa meira

Óvissustig

Lesa meira

Randalín, Mundi og afturgöngurnar

Lesa meira