Beint í efni

Ugluturn

Ugluturn
Höfundur
Hermann Stefánsson
Útgefandi
Höfundur
Staður
Reykjavík
Ár
2012
Flokkur
Ljóð


Úr Ugluturni:



Ég sef ekki,

langdregið væl úr uglu berst

utan úr

nóttinni. Undan múrveggnum

heyrist glamur eins og verið sé að hrista

saman

glös eða flöskur

Fólkið við vegginn skvaldrar

út í eitt

Öll þessi hljóð smjúga inn um gluggarifuna



_ _ _ * _ _ _



Undir lágnættið fer ég á fætur, læðist, hvolfi úr tesíu í vaskinn, finn til laufblöð og ber þau blaut að vörum mér  Aftur vælir uglan, draumlaust, gult, ég heyri lykt af sóleyjum og ásókn hrafna  Ég fer í frakka, klæðist peysu sem héldi hita í meiri kulda en nú, ef ekki væri fyrir glamrið í mannverunum með glösin við grátmúrinn sem nú taka að gefa frá sér neyðaróp  Um leið og ég tek í dyrahúninn hleypur kvikt smádýr upp handleginn, borar sig inn um húdina við olnbogabótina í máli mínu, dyrnar opnast, mr night réttir mér hönd sína og togar mig út, leiðir mig undir trén sem slútta yfir gangstíginn, ég heyri



langdregið væl í uglu



(7-8)


Fleira eftir sama höfund

Hælið

Lesa meira

Zeitreise als Laborratte

Lesa meira
millibilsmaður

Millibilsmaður

Í Reykjavík geisar mikið fár yfir hinni nýju stefnu, spíritismanum.
Lesa meira

Níu þjófalyklar

Lesa meira

Sjónhverfingar: Fjarvistarsannanir fyrir íslenskan veruleika

Lesa meira

Stefnuljós

Lesa meira

Borg í þoku

Lesa meira

Áður óútgefið efni

Lesa meira

Súkkulaði og kók

Lesa meira