Beint í efni

Umfjöllun

Umfjöllun
Höfundur
Þórarinn Eldjárn
Útgefandi
Vaka-Helgafell
Staður
Reykjavík
Ár
2021
Flokkur
Smásögur

Um bókina

Þórarinn Eldjárn er þjóðkunnur fyrir smásögur sínar. Hann er fundvís á forvitnileg sjónarhorn og fjallar af næmi og glöggskyggni um fólk og furður fyrr og nú. Sagnabrunnur hans er ætíð gjöfull og húmorinn aldrei langt undan.

Umfjöllun geymir átta sögur úr smiðju Þórarins Eldjárns. Sögurnar eru úr fortíð og samtíð, stuttar og langar, sögupersónur eru eftirminnilegar og umfjöllunarefnin fjölbreytt: Sagt er frá starfi eftirlaunaþega á þjóðháttasafni, afdrifaríkri sjóferð á átjándu öld, bobbspili og bílaþvotti, sjálftölurum og sviðstúlkun, Þórði malakoff og Ágústi Strindberg – og ljóstrað upp um eitt og annað sem legið hefur í þagnargildi.

Úr bókinni

Máttur skáldskaparins

Ég hafði rennt við hjá gömlum skólabróður og vini til að fá lánaða bók. Hann bauð mér kaffi. Eftir að hafa hellt í bollana bar hann fram hnetur og súkkulaðirúsínur í snoturri, nokkuð sérkennilegri, alldjúpri skál sem stóð á þremur kúlulaga silfurfótum. Ég virti hana fyrir mér, fannst hönnunin athyglisverð en við nánari skoðun var augljóst að sjálf skálin var höfuðskel úr manni.
  - Merkileg skál, sagði ég, hvar komstu yfir þetta?
  - Erfðagripur, svaraði vinur minn, og áreiðanlega enn merkilegri en þig grunar.
  - Nú, kannski höfuðbein úr einhverjum forföður þínum?
  - Ja, reyndar miklu merkilegri en svo.
  Það fannst mér ótrúlegt að heyra því vinur minn er stórættaður og veit fátt merkilegra en forfeður sína.
  - Hvernig má það vera? spurði ég.
  - Ég skal segja þér það að þetta er nú bara hreinlega höfuðskel sjálfs Þórðar malakoffs.

(s. 103-104)

 

Fleira eftir sama höfund

Flügelrauschen

Lesa meira

Le sens pris aux mots

Lesa meira

Les visiteurs du passé

Lesa meira

Rester interdit

Lesa meira

Barnasögur úr ýmsum áttum

Lesa meira

Vaknaðu, Sölvi

Lesa meira

Ása og Erla

Lesa meira

Hér liggur skáld

Lesa meira

Im Blauturm

Lesa meira