Beint í efni

Á vængjum söngsins: Jóhann Ingimundarson segir frá

Á vængjum söngsins: Jóhann Ingimundarson segir frá
Höfundur
Gylfi Gröndal
Útgefandi
JPV-útgáfa
Staður
Reykjavík
Ár
2005
Flokkur
Ævisögur og endurminningar

Af bókarkápu:

Jónas Ingimundarson er fæddur á Bergþórshvoli en ólst upp á Selfossi og í Þorlákshöfn. Bernska hans var á margan hátt erfið; móðir hans átti við veikindi að stríða og foreldrar hans skildu þegar hann var ellefu ára. Það vildi honum til happs að eiga stóra fjölskyldu sem studdi hann með ráðum og dáð og gerði sér grein fyrir þeim miklu hæfileikum á sviði tónlistar sem hann var gæddur.
Þetta er sagan af lopapeysustráknum frá Þorlákshöfn sem eftir langt nám og harða baráttu vann sigur og hlaut viðurkenningu alþjóðar. En Jónas er ekki aðeins píanóleikari af guðs náð, heldur hefur hann einnig verið kórstjóri, kennari, skipuleggjandi tónleika og síðast en ekki síst unnið ómetanlegt starf við að kynna tónlistina.
Jónas er einlægur hugsjónamaður, hefur ósvikna kímnigáfu og einstakt lag á að ná til fjöldans og láta öðrum líða vel í návist sinni.
Margt mun kom á óvart í þessari áhrifaríku og skemmtilegu sögu um líf og list eins ástslælasta og merkasta tónlistarmanns þjóðarinnar.
Bókin er rækilega myndskreytt og henni fylgja tveir geisladiskar með leik Jónasar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Fleira eftir sama höfund

Þegar barn fæðist : Endurminningar Helgu M. Níelsdóttur ljósmóður

Lesa meira

Ógleymanlegir menn : Viðtöl I

Lesa meira

Menn og minningar : Viðtöl og þættir um ógleymanlega menn II

Lesa meira

Saga athafnaskálds : Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk

Lesa meira

Robert Kennedy : Ævisaga

Lesa meira

Steinn Steinarr: Leit að ævi skálds II

Lesa meira

Kaupfélag Borgfirðinga 80 ára 1904-1984

Lesa meira

Döggslóð

Lesa meira

Hernámsljóð

Lesa meira