Beint í efni

Villueyjar

Villueyjar
Höfundur
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
Útgefandi
Bókabeitan
Staður
Reykjavík
Ár
2019
Flokkur
Unglingabækur

Um bókina

Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið. Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni.
Eftir það breytist allt.

Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.

Villueyjar er önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók, Koparborgina. Koparborgin hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. 

 

 

Fleira eftir sama höfund

Koparborgin

Lesa meira