Beint í efni

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi og fyrst veitt í apríl 2019. Reykjavíkurborg veitir verðlaunin árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er þeim ætlað að styðja við nýsköpun í greininni.

Dómnefnd verðlaunanna er skipuð þremur einstaklingum tilnefndum af menningar-, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundsambandi Íslands.

Nánar um verðlaunin og skilafrest handrita.

2021

Margrét Tryggvadóttir: Sterk. Bókin kom út hjá Máli og menningu sama ár.

2020

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sif Bjarnadóttir: Blokkin á heimsenda. Bókin kom út hjá Forlaginu sama ár.

2019 

Bergrún Íris Sævarsdóttir: Kennarinn sem hvarf. Bókin kom út hjá Bókabeitunni sama ár.