Höfundar og bækur
Höfundalisti
„Í þessari skuggaveröld er skuggi á ferli. Hann líður hljóðlaust eftir fjörunni, framhjá bátum og upp í Eyrina.“
"Draummaðurinn sagðist vera að koma ofan af hálendi og rétti henni annál fyrir árið 2062, bundinn inn í glært skinn. Þar voru allir merkilegir atburðir þess árs niður ritaðir..."
„Áhöfnin veifaði Íslendingum sem stóðu á bryggjunni og amerískum flugmönnum sem sveimuðu yfir.“
„Þú bendir með höfðinu út um gluggann og þá sé ég að þú hefur verið að fylgjast með Einari og Maríu ...“
„Myglusveppurinn hafði birst aftur á veggnum, virtist bæði skríða undan parketinu og úr gatinu ...“
„Þær stálu ávísanahefti úr frakkavasa uppí Háskóla. Fóru í bæinn og fölsuðu á fullu.“
„Ég var byrjaður í heimspeki á máli sem ég hafði barnatök á, svona álíka og senda barn á snjóþotu niður skíðastökkpall.“
„Hún strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir fingurgómunum.“
„Merkilegt með minningar, að eftir því sem tíminn líður fara þær að deila æ fleiri eiginleikum með draumum ..."
„Í öllum grundvallaratriðum var hann góður maður en ekki þoldi þó allt dagsljósið lengur.“
„Venjulega eru þetta bara nokkur skref. Núna teygist óendanlega úr ganginum í rökkrinu.“
„Flugfreyjan hnippir í mig og biður mig að rétta sætisbakið og allt það. Brosir þessu brosi sem íslenskar flugfreyjur halda að sé kurteislegt.“
„Varúð! Bók þessi er ekki skemmtileg og spennandi saga fyrir hressa krakka, hún er ekki svar Íslands við Harry Potter og hún inniheldur engan góðan boðskap."
„Goggurinn var nýbrýndur að sjá og hann var að belgja sig alveg sérstaklega út af þeirri heimsku grimmd ...“
„Þau rífa upp dyrnar á pósthúsinu og ryðjast inn. Það fer góður slatti af snjó með þeim inn á gólf.“
„Yfir hvelfist heiður stirndur himinn með hálfum mána, sem kastar skímu sinni yfir þöglar verur ...“
„Ég hafði enga hugmynd um hverju athæfið sætti þangað til Þrúður upplýsti mig um það ...“
„Frá og með deginum í dag / er mannhelgin færð / úr hafmílum í hugmílur“
„Ég var kófsveitt eftir polkann. Hljómsveitin í Alþýðuhúsinu skipti undraskjótt yfir í vals.“
„Guðgeir hafði komið inn í ófáa fangaklefa. Allir voru þeir áþekkir; rúm, borð, stóll og þrúgandi innilokunartilfinning í kaupbæti.“
„Smári kemur auga á svartan hnífastokk á eldhúseyjunni. Í stokknum eru ótal hnífar með svörtu skafti ...“
„Eina birtan þarna inni barst um rifur á loftinu og frá kerti sem rekið hafði verið ofan í tóma vínflösku.“
„Ein af G- nótunum fyrir vinstri höndina var biluð og gaf aðeins frá sér dauft klonk en systir mín lærði fljótt að skauta framhjá henni ...“
„Hver vill ganga um stimplaður? Í Frakklandi ertu orðinn áberandi ef þú ert með tveggja daga skeggbrodda ...“
„Fyrir tæpum / tvö þúsund árum / fæddist / einn / góður maður / langt, langt / í burtu.“
„Mér varð starsýnt á nokra horaða karlmenn með golfkylfur hinum megin við trjágöngin ...“
„Stormurinn rífur upp hafið af svefni, hendir skýjunum á fleygiferð og kastar til fuglunum ...“

























































