Svo fögur bein
Lesa meira
Svo fögur bein
Svo fögur bein eftir Alice Sebold er í grundvallaratriðum fjölskyldusaga, en einnig mætti kalla hana þroskasögu stúlku. Það er stúlkan sjálf, Súsý, sem segir söguna, en hún er í sínu eigin himnaríki þaðan sem hún fylgist með fjölskyldu sinni og morðingja, auk vina og skólafélaga. Eins og oft vill verða við áföll af þessu tagi kemur upp sundrung í fjölskyldunni, foreldrarnir missa tengslin sín á milli og yngri systirin byrgir sorgina inni og þarf að bera byrði þess sem eftir lifir. Móðirin tekur upp tilgangslaust ástarsamband við lögreglumann sem rannsakar morðið meðan faðirinn verður sannfærður um hver morðinginn er, en fær engan til að trúa sér. Inn í söguna blandast svo saga tveggja skólasystkina Súsý, en annað þeirra er strákur af indverskum uppruna sem hún er skotin í, hitt er stúlka sem hafði fundið fyrir nálægð Súsý, þegar sál hennar, enn nokkuð ringluð, flaug til himna. Og að sjálfsögðu þræðir sig svo í gegnum alla söguna einskonar spennusöguþráður sem gengur út á morðingjann og hvort upp um hann muni komast, og er úrvinnslan úr þeim þræði kannski það áhugaverðasta við söguna.