Dauðinn og mörgæsin
Lesa meira
Dauðinn og mörgæsin
Upptrekkta mörgæsin mín vekur alltaf jafnmikla lukku meðal barna. Frekar smá og líklega keypt í ritfangaverslun í London, mig minnir að ég hafi ætlað hana sem gjöf en einhvernveginn endaði hún á skrifborðinu hjá mér, við hliðina á mörgæsayddaranum og múmínálfunum (líka mætti nefna Gromit blýant, hákarlastrokleður og drekapenna). Og þaðan taka krakkar hana, trekkja harkalega upp og láta hana svo bægslast endalaust um, með göngulagi sem minnir ókennilega mikið á raunverulegt klaufalegt þramm mörgæsa: hún vaggar til beggja hliða með daufu klakki, það eina sem stingur í stúf er of stór appelsínugulur goggur sem minnir meira á önd.