Beint í efni

Arnaldur Indriðason

Æviágrip

Arnaldur fæddist í Reykjavík þann 28. janúar árið 1961. Foreldrar hans eru Þórunn Ólöf Friðriksdóttir, húsmóðir, og Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur. Arnaldur varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1981 og lauk B.A.-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1996. Hann var blaðamaður við Morgunblaðið 1981-1982, lausamaður við kvikmyndaskrif frá þeim tíma og kvikmyndagagnrýnandi blaðsins frá 1986-2001.

Arnaldur hefur sent frá sér mikinn fjölda skáldsagna sem allar eru spennusögur. Hann hefur unnið útvarpsleikrit upp úr nokkrum bóka sinna, sem voru flutt á Rás 1 RÚV. Skáldsögur hans hafa verið þýddar á fjölmörg mál og hlotið mjög góðar viðtökur, til að mynda í Þýskalandi þar sem bækur hans hafa selst í hundruðum þúsunda eintaka. Arnaldur hlaut Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin, fyrir Mýrina 2002 og aftur ári síðar fyrir Grafarþögn. Hann fékk Gullna rýtinginn 2005, verðlaun samtaka breskra glæpasagnahöfunda, fyrir þýðingu Bernards Scudders á Grafarþögn, Silence of the Grave. Árið 2018 hlaut hann Kalíber verðlaunin (The Great  Calibre Award), en þau eru veitt fyrir feril á hátíðinni The International Mystery & Thriller Festival í Póllandi. Þá hefur Arnaldur hlotið styrki frá Kvikmyndasjóði Íslands til að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bókunum Dauðarósum og Napóleonsskjölunum. Kvikmynd byggð á Mýrinni, í leikstjórn Baltasars Kormáks, var frumsýnd 2006. Hann hreppti Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fyrir Harðskafa (2008) og Petsamo (2017) og hefur hlotið tilnefningar til Glerlykilsins, Norrænu glæpasagnaverðlaunanna.

Mynd af höfundi: Einar Falur Ingólfsson.

Lesið ritþing um Arnald Indriðason í Gerðubergi 17. apríl 2004