Loðmar
Lesa meira
Loðmar
Það er ótrúlega margt sem býr í einfaldri sögu þeirra Auðar Aspar Guðmundsdóttur og Emblu Vigfúsdóttur, Loðmar. Sagan fjallar í raun ekki um neitt annað en það að Loðmar rankar við sér á opnu eitt og ákveður að sjá hvað býr á næstu síðu. Þannig rekur hann sig alla leið til síðustu opnunnar (sem samt er ekki sú aftasta), númer ellefu, og byrjar loksins þar að búa til bók í félagi við Knuðlján sem hann hitti á opnu átta. Ef einhver er ringlaður eftir þessa lýsingu skal ég byrja aftur. Hægar.