Sjáðu svarta rassinn minn: íslenskar þjóðsögur og ævintýri
Lesa meira
Sjáðu svarta rassinn minn
Ég var ekki há í loftinu þegar ég byrjaði að drekka í mig íslenskar þjóðsögur og ævintýri (er það reyndar ekki enn), en þetta menningaruppeldi æskunnar er án vafa mitt mikilvægasta. Þjóðsagnaarfurinn er óþrjótandi uppspretta þekkingar og hugleiðinga og hefur nýst rithöfundum sem innblástur, nú síðast má sjá ummerki draugasagnahefðarinnar í skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig. Sú bók hefur einmitt notið mikilla vinsælda, sem segir sitt um þorsta lesenda eftir almennilegum útgáfum á þessum oft afskipta menningararfi (sem að mínu mati er margfalt merkilegri en þetta Íslendingasagnadót sem allir eru alltaf að mæra). Nokkrar myndabækur sem byggja á þjóðsagnagnægtinni hafa komið út á undanförnum árum.