Boy Vampire: The Resurrection
Lesa meira
Boy Vampire: The Resurrection
Undanfarið hefur hér á Borgarbókasafninu borið mikið á evrópskum myndasögum sem gefnar eru undir merkjum SAF Comics (SAF stendur fyrir Strip Art Features). Eftir að hafa lesið nokkrar fór ég að forvitnast um fyrirtækið og komst þá að því að það á sér nokkuð merkilega sögu. Í dag er SAF staðsett í Slóveníu, en upphaflega voru höfuðstöðvarnar í Sarajevo. Útgáfan var stofnuð árið 1972 af Ervin Rustemagic, sem þá var aðeins 19 ára. Hann byrjaði smátt en fljótlega var hann kominn með nokkra þekkta höfunda og á níunda áratugnum var fyrirtæki hans orðið eitt af stærstu fyrirtækjunum í þessum bransa og sinnti bæði útgáfu og dreifingu til annarra útgefenda.