Leyndarmál Lorelei
Lesa meira
Leyndarmál Lorelei
Málfræðingurinn Paul Iverson missir konu sína, Lexy, og verður svo upptekinn af dauða hennar að hann fer að reyna að kenna hundinum þeirra að tala en hundurinn var eina vitnið að því hvernig dauða hennar bar að höndum. Þar sem hún virðist hafa fallið úr hæstu greinum eplatrés er ályktað að um sjálfsvíg hafi verið að ræða en Paul á erfitt með að sætta sig við þá niðurstöðu. Hann sér, eða ímyndar sér, vísbendingar um að eitthvað annað hafi átt sér stað. Í fríinu sem hann fær frá háskólanum sem hann kennir við fer Paul að leita leiða um hvernig hægt sé að fá hundinn Lórelei til að tjá sig um atburði. Kannski er þetta flóttaleið hans frá sorginni.