Þrettánda sagan
Lesa meira
Þrettánda sagan
Þrettánda sagan er fyrsta skáldsaga höfundarins, Diane Setterfield, sem er menntuð í frönskum bókmenntum og hefur starfað sem háskólakennari, bæði í Bretlandi og í Frakklandi þar sem hún bjó um tíma. Sagan er alveg ný, gefin út á ensku fyrr á þessu ári og birtist hér íslenskum lesendum í ágætri þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur. Sagan hefst á því að Margaret, sem vinnur í fornbókaverslun föður síns en hefur auk þess skrifað ævisögur, eða réttara sagt ritgerðir um ævi óþekktra karla og kvenna, fær bréf frá Vidu Winter, einum vinsælasta rithöfundi Bretlands. Vida vill fá Margaret til sín til að skrifa ævisögu sína, en líf hennar er sveipað hulu leyndardóma og hún hefur í gegnum tíðina sagt fjölmiðlum ótal sögur um ævi sína.