Beint í efni

Gunnhildur Hrólfsdóttir

Æviágrip

Gunnhildur Hrólfsdóttir fæddist 1. nóvember 1947 í Vestmannaeyjum. Fljótlega að loknu gagnfræðaprófi hóf hún störf á barnaheimili. Gunnhildur missti heimili sitt í gosinu í Vestmannaeyjum 1973 og fluttist í kjölfarið búferlum til Reykjavíkur þar sem hún hefur búið síðan.

Gunnhildur hefur einkum skrifað fyrir börn og unglinga, bæði skáldsögur og leikrit. Hún hlaut fyrstu verðlaun fyrir söguna „Undir regnboganum“ í samkeppni sem Ríkisútgáfa námsbóka efndi til á ári barnsins 1979. Bókin var gefin út hjá Ríkisútgáfu námsbóka ári síðar og hefur verið notuð sem lestrarbók í grunnskólum. Ástarsagan Vil, vil ekki kom út 1986. Gunnhildur á söguna Gulllykillinn í bókinni Ormagull sem kom út 1994 og innihélt 14 bestu smásögur úr smásagnasamkeppni Íslandsdeildar IBBY. Hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2001 fyrir bókina Sjáumst aftur . . . Greinar hafa birst eftir Gunnhildi í tímaritunum Veru og 19. júní. Hún hefur ennfremur haft umsjón með útvarpsþáttum um Vestmannaeyjar, tekið þátt í félagsmálum innan Rithöfundasambandsins og gegnt ritstjórnarstarfi blaðsins Börn og bækur sem gefið var út af IBBY samtökunum (International Board on Books for Young People).