Bróðir
Lesa meiraVince Vaughn í skýjunum og Hjartað er jójó
Lesa meiraDrón
Lesa meira
Bróðir
Prósi Halldórs er tilfinningaríkur og ristir djúpt þar sem hann gefur sér mikið rými til að grennslast fyrir í hugarheimi persónanna. Bróðir kafar ofan í dýpstu kima sektarkenndar og harms sem gefur textanum stundum háfleygan blæ. Löngum ljóðum bregður fyrir á ögurstundum innan verksins sem myndar áhugavert mótvægi við spennusagnaeinkenni bókarinnar. Aðdáendur pistla Halldórs á Rás 1 þurfa þó ekki að óttast að fá ekki eitthvað fyrir sinn snúð því analýtískri hlið hans bregður einnig fyrir í verkinu.
Drón
Drón er önnur bók Halldórs Armands Ásgeirssonar sem skaust upp á stjörnuhiminn íslenskra bókmennta með sinni fyrstu bók, Vince Vaughn í skýjunum (2013), en sú inniheldur tvær nóvellur; titilsöguna og Hjartað er jójó. Frumraun Halldórs var ferskt innlegg í íslenska bókmenntaflóru, sannkölluð 21. aldar saga þar sem höfundurinn beinir sjónum sínum að lífi ungs fólks á tölvuöld. Halldór er á svipuðum slóðum í Dróni sem er metnaðarfull stúdía á hinum tæknivædda samtíma. Hér er fjallað um samband mennsku og tækni, mátt upplýsinga og hið alltumlykjandi fyrirbæri sem internetið er, sem allt man og engu gleymir.. .
Vince Vaughn í skýjunum og Hjartað er jójó
Eitt skipti í síðasta mánuði fór ég suður fyrir Mjódd inn á Reykjanesbraut og nýtti þá tækifærið til að sjá hvað væri í bíó. Framan á bíóhúsinu í Álfabakka héngu þrjú eða fjögur skilti nógu stór til að sjást úr bílum á ferð, öll nema eitt þeirra sýndu eitthvað annað en leikarann Vince Vaughn, en eitt þeirra sýndi ekkert annað en leikarann Vince Vaughn. Auglýsingin var fyrir kvikmyndina Delivery Man, sem er endurgerð á kanadísku kvikmyndinni Starbuck.