Bieber og Botnrassa
Lesa meira
Bieber og Botnrassa
Hér er sagt frá Andreu sem er 12 ára, nemandi í Öldó og einn af fjórum krökkum sem saman mynda hljómsveitina Botnrössu. Í byrjun sögunnar fær Andrea veður af ótrúlega spennandi hljómsveitakeppni sem á að fara fram í Hörpu. Hver sem vill má skrá sig til leiks og keppa um þátttökuréttinn í enn stærri keppni í London, þar sem nokkrar hljómsveitir verða valdar úr til að hita upp fyrir sjálfan Justin Bieber á tónleikum. Andrea og félagar hennar í Botnrössu hafa litla reynslu af því að koma fram en ákveða að slá til og fá leyfi foreldra sinna til að taka þátt. Krakkarnir semja svo nýtt lag sem þau eru sannfærð um að eigi möguleika á að slá í gegn og vinna keppnina.