Leið
Lesa meiraAf hjaranum
Lesa meira
Leið
Hún lætur ekki mikið yfir sér, skáldsaga Heiðrúnar Ólafsdóttur, Leið. Titillinn er stuttur og brotið lítið, nokkru minna en hefðbundið kiljubrot. Kápan er látlaus, grænlitaður vefnaður, sem mögulega geymir leynd mynstur. Sjálf er sagan ekki átakamikil, þó vissulega sé þar fjallað um átakanleg mál. Það er kannski einmitt í því sem styrkur verksins felst, að skila rífandi tilfinningaóreiðu í hógværum og fumlausum stíl. Á síðasta ári vakti Heiðrún athygli fyrir ljóðabókina Af hjaranum sem fjallaði um veru ungrar konu í borg á Grænlandi og lýsti vel tilraunum hennar til að fóta sig í framandi samfélagi. Fram kemur að konan er á flótta, frá hverju er þó ekki ljóst. Leið fjallar einnig um flótta, en nú er áherslan á það sem verið er að flýja: lífið sjálft, fortíðina, og ekki síst, það að geta ekki fundið sér stað.. .
Af hjaranum
Áður en lengra er haldið er vert að taka það fram að undirrituð hefur ekki lesið margar bækur sem fjalla um eða gerast á Grænlandi og er það sannarlega miður. Ég hef lesið um það bil hundrað blaðsíður í Lesið í snjóinn eftir Peter Höeg, sem fjallar um hina hálfgrænlensku Smillu er þekkir snjó betur en flestir og les hann til að leysa glæpamál, en ég hef ekki lesið svo mikið sem eitt ljóð sem tengist Grænlandi með einum eða öðrum hætti þar til nú. Það er því kærkomið og skemmtilegt að fletta nýjustu ljóðabók Heiðrúnar Ólafsdóttur, Af hjaranum, sem kom út núna fyrir jólin og segir frá tveggja mánaða dvöl hennar á Grænlandi.