Snákar og eyrnalokkar
Lesa meira
Steinarnir hrópa
Það er ekki ólíklegt að vinsældir japanska rithöfundarins Haruki Murakami hafi jákvæð áfhrif á viðtökur annarra japanskra rithöfunda. Þó er ljóst að þær bækur sem ratað hafa á íslenska tungu nýlega, Snákar og eyrnalokkar frá því í fyrra og nú ný þýðing, Steinarnir hrópa, eru allólíkar verkum Murakamis. Japönsk menning blómstrar reyndar á Íslandi í formi manga, japanskra myndasagna, og því ætti að vera gott lag um þessar mundir að koma hefðbundnari japönskum bókmenntum á framfæri.