Skuggi Rökkva
Lesa meiraÚrg ala buks unum
Lesa meira
Skuggi Rökkva
Jean Antoine Posocco er franskur að uppruna en hefur sinnt íslenskum myndasögum af miklu afli. Fyrir utan að halda myndasögutímaritinu Bleki gangandi um áraraðir, þá hefur hann sent frá sér ákaflega íslenskar myndasögur um jólasveina og tröll, sem eiga rætur í íslenskum þjóðsögum og ævintýrum.
Úrg ala buks unum
Undanfarið hafa Njálu-myndasögur þeirra Emblu Ýrr Bárudóttur og Ingólfs Arnar Björgvinssonar vakið nokkra athygli, ekki síst fyrir það hversu vel þeim hefur tekist að koma sagnaarfinum yfir á form myndasögunnar. Þau voru reyndar ekki fyrst til að leggja í verkefni af þessu tagi, en fyrir nokkrum árum reyndu Búi Kristjánsson og Jón Karl Helgason fyrir sér með Íslendingasögur í myndasögum. Það framtak vakti ekki viðlíka athygli og er óhætt að segja að þar spili aðstæður inní, en á allra síðustu árum hefur íslenskum myndasögum verið að vaxa ásmegin, þær fá meiri athygli en áður og eru orðnar viðurkenndari í menningarlandslaginu.