Hansel and Gretel
Lesa meiraPrincess Mermaid
Lesa meiraCinderalla
Lesa meira
Cinderalla, Hansel and Gretel og Princess Mermaid
Fyrir dálitlu síðan tapaði ég mér gersamlega í myndasögunni Cinderalla (Viz, 2002) eftir japanska höfundinn Junko Mizuno. Sagan er einskonar hrollvekju-erótísk útgáfa af öskubuskuævintýrinu og segir frá Cinderöllu litlu sem vinnur á veitingahúsi föður síns, gengur þar um beina ákaflega fáklædd innanum aðrar fáklæddar gengilbeinur. Veitingahúsið er mjög vinsælt, því faðirinn gerir sérlega góða teriyaki sósu. En svo dynja þau ósköp yfir að faðirinn deyr og framtíð Cinderöllu er í hættu. Allt virðist falla í ljúfa löð aftur þegar faðirinn rís upp aftur sem zombía (samt ekki heiladauður eins og ameríska hefðin segir til um) og hefur í leiðinni kynnst konu - sem líka er zombía og á tvær (zombíu) dætur.