Málavextir
Lesa meira
Málavextir
Málavextir er fyrsta bókin um einkaspæjarann Jackson Brodie. Hún kom út í Englandi 2004. Síðan hefur höfundurinn sent frá sér tvær bækur í viðbót um Brodie: One Good Turn og When Will There Be Good News. Áður hafði Kate Atkinson sent frá sér þrjár eða fjórar skáldsögur og smásagnasafn. Þótt Brodie sé einkaspæjari og fyrrverandi lögreglufulltrúi og vissulega fjalli bókin um sakamál þá er klárlega ýmislegt annað sem hangir á spýtunni hjá Atkinson en að skrifa enn eina hefðbundna glæpasöguna. Eins og enski titillinn, Case Histories, ber með sér eru þarna nokkur mál sem tvinnast saman að því leyti að Brodie kemur að þeim öllum með einhverjum hætti.