Hermann
Lesa meiraHálfbróðirinn
Lesa meira
Hermann
Nú verð ég að byrja á því að játa að ég hef ekki lesið Hálfbróðurinn, hina þýddu bókina eftir Lars Saabye Christensen, þó ég hafi heyrt um hana mikið lof. Mér hefur bara alltaf fundist hún eitthvað svo ógurlega stór, svona í samanburði við sjálfa mig. En nú sé ég að mér er ekki lengur undankomu auðið, ef þessi litla saga af Hermanni og hárlosi hans er einhver mælikvarði á gæði höfundarins, þá verð ég að drösla Hálfbróðurnum uppað náttborðinu hjá mér.
Hálfbróðirinn
Það er einkennilegt ástand í norrænum bókmenntum þessi árin. Á meðan Danir eiga í stöðugum hjaðningavígum um hvort sé dauðara, mínímalískur naflaskoðunarskáldskapur þar sem skáldsögurnar fara allt niður í 48 síður eða hinar stóru frásagnir raunsæisins, streyma stórar epískar skáldsögur frá Noregi eins og ekkert hafi í skorist norrænum lesendum til ómældrar ánægju. Afleiðingin er svo sú að lestur á fagurbókmenntum er í frjálsu falli í Danmörku og þeir sem á annað borð lesa kasta sér yfir Norðmennina.