Minni líkur meiri von
Lesa meira
Minni líkur meiri von
Hvernig er að vera bara venjuleg stelpa en eiga pabba sem vinnur hættulegt starf, pabba sem maður þarf stöðugt að vera að hafa áhyggjur af? Hvernig á venjuleg stelpa að skilja hvað vakir fyrir manni sem vill vinna á hættulegum stöðum og hvernig tekst maður á við það þegar eitthvað kemur fyrir? Marjolijn Hof er þekktur hollenskur barnabókahöfundur en fyrir bókina Minni líkur meiri von hefur hún hlotið virt barnabókaverðlaun í Hollandi. Bókin hefur verið kvikmynduð þar í landi og hefur myndin líkt og bókin vakið mikla lukku. Nú er hún komin út í íslenskri þýðingu Jónu Dóru Óskarsdóttur.