Stundarfró
Lesa meira
Stundarfró
Stundarfró er fyrsta skáldsaga Orra Harðarsonar. Hann hefur áður sent frá sér bókina Alkasamfélagið (2008) og einnig unnið við þýðingar, tónlistargagnrýni, lagasmíðar og upptökustjórn. Margt til lista lagt sem sé. Atburðir í þessari sögu teljast kannski ekki stórvægilegir utan frá séð eða á alþjóðlegan mælikvarða en skipta miklu máli í lífi venjulegs fólks. Músík kemur hér mikið við sögu. Það er vitnað í dægurlagatexta og sagt frá hvaða lög hljóma úr útvarpstækjum eða eru leikin af hljómplötum. Það er lögð áhersla á músíkumhverfi persónanna. Öðru umhverfi er líka gerð greinagóð skil, hvort sem það er Akureyri, Reykjavík eða Kaupmannahöfn.. .