Villueyjar
Lesa meiraKoparborgin
Lesa meira
Villueyjar
Villueyjar er sjálfstætt framhald af Koparborginni, en borgin úr þeirri síðarnefndu tilheyrir nú fortíðinni og dularfullum horfnum heimi sem aðalpersóna Villueyja, hin 14 ára gamla Arilda, fær smjörþefinn af í upphafi sögunnar.
Koparborgin
Drengurinn Pietro flýr gamla heimili sitt, staurahverfið þar sem húsin standa á staurum í sjónum nálægt höfninni í stórri borg. Hræðileg, mannskæð pest geysar í hverfinu og allir veikjast, Pietro þar með talinn. Einhverjir reyna að flýja en íbúar í öðrum hverfum borgarinnar gera hvað sem er til að koma í veg fyrir það, takist einhverjum að komast undan mun pestin breiðast út. Á einhvern undraverðan hátt tekst Pietro samt sem áður að sleppa og eftir að hafa hrakist hundeltur um borgina flýr hann út í bannfærðan vita, þar sem borgarbúar ná ekki til hans. Í vitanum er hann öruggur en ógnvænlegir hlutir eiga sér stað á meðan hann dvelur þar sem eiga eftir að hafa áhrif á alla framvindu sögunnar og líf Pietro.